banner

Showing posts with label ljósmyndun. Show all posts
Showing posts with label ljósmyndun. Show all posts

Brúðkaups-workshop

Stockholmbrollop1 brollop2 Ég var á svo ótrúlega skemmtilegu brúðkaups workshoppi alla helgina þar sem ég lærði alveg heilan helling. Workshoppið var haldið á Fotografiska, ljósmyndasafni í Stokkhólmi...sem ég mæli 100% með ef þið heimsækið Stokkhólm. 
Myndirnar hér að ofan eru brot af myndunum sem ég tók og ég deili kannski restinni seinna ef þið viljið sjá meira.

Annars hef ég verið að hugsa um að kíkja til Íslands í sumar og taka þá að mér einhver ljósmyndaverkefni í leiðinni...svo ef þið hafið áhuga á barna, fjölskyldu eða jafnvel brúðkaupsmyndatöku megið þið endilega sent mér póst. :)

p.s. Þið megið líka endilega deila þessu áfram ef þið vitið um einhvern í leit að ljósmyndara. ;);)

Mars helgi...

marshelgi
Sól og kuldi en bráðum kemur vor. Hér í Svíþjóð eru þeir meira að segja búnir að lofa því að vorið komi snemma í ár, ég treysti á að það rætist!

Photoshop-Fyrir og eftir

Ég fékk tölvupóst um daginn frá stelpu sem vildi fá að sjá mynd frá mér fyrir og eftir vinnslu í photoshop svo ég ákvað að setja saman smá dæmi.

alma-photoshopemil-photoshop

Ég tek allar myndir á “manual” stillingu og mæli með því ef þið viljið hafa fulla stjórn á því sem þið eruð að gera.
Það er misjafnt hvernig ég vinn hverja mynd en ég byrja á að opna myndirnar í “Camera Raw” þar laga ég “exposure” eða birtuna og bæti við kontrastinn. Ef ég ætla að gera mynd svarthvíta geri ég það einnig í Camera Raw.

Næst opna ég myndina í photoshop og þar laga ég hana yfirleitt til með því að fikta í “curves” og “levels” en það fer alveg eftir hverri mynd hvað ég geri.
Um leið og maður lýsir upp og bætir við kontrastinn lagar maður myndina alveg helling og þetta er hægt að gera í flestum myndvinnsluforritum. Ég hef enga reynslu af neinu öðru forriti en Photoshop en held að það sé hægt að ná sér í frí forrit á netinu þar sem hægt er að gera allt þetta helsta.
Myndirnar hér að ofan eru teknar inni í stofu heima um miðjan dag með stóran glugga sem ljósgjafa.

Ég vona að þetta hafi hjálpað einhverjum og ef þið hafið einhverjar spurningar geri ég mitt besta í að svara þeim.

Vetur

Follow my blog with Bloglovin
vetur

Kalt og fallegt úti núna en ég bíð spennt eftir vorinu.

Barcelona

Untitled-2
Myndir eftir Fredrik teknar í Barcelona árið 2005 en myndvinnsla eftir mig í kvöld. :)
Mikið sakna ég Barcelona alltaf... og Fredriks en hann kemur heim á morgun og það verður afar ljúft að fá hann heim til okkar.


Myndavélatöskur

Untitled-6
1 2 3 4 5

Ég á bara ljótar myndavélatöskur og væri alveg til í eina svona fína.

Komin aftur :)

Jæja ég var að hugsa um að koma þessari síðu aftur í gang. Nú eru krakkarnir bæði byrjuð í leikskóla og smá rútína að komast á lífið hér.

Ég var að skella inn myndum úr brúðkaupi Elínar og Kára á nýju síðuna mína og þar eru líka brúðkaupsmyndir frá því í sumar, en ég frétti að einhverjir væru að bíða eftir þeim. ;)

blom



Spennandi tímar...

Það eru svo spennandi tímar framundan, á morgun er ég að fara að mynda brúðkaup og í gær skrifaði ég undir leigusamning fyrir húsnæði þar sem ég ætla að opna ljósmyndastudio. Ég fæ lykla 15.júlí og þá tekur bara við vinna við að mála og gera allt klárt. Ég ræð mér varla fyrir spenningi nú þegar þetta er allt að verða raunverulegt.
Hér eru nokkrar prufu myndir sem ég tók af brúðarparinu þegar ég hitti þau um daginn.

2-web
3-web

Uppáhalds...


Nokkrar flickr uppáhalds:
My creation