banner

Showing posts with label fjölskyldan. Show all posts
Showing posts with label fjölskyldan. Show all posts

Alma og midsommar

Ég tók langa pásu frá þessari síðu minni en allt í einu langar mig til þess að setja hana í gang aftur.
Almamidsommar Byrja með nokkrum myndum af Ölmu minni. Hún hjálpaði mér við að finna blóm til að skreyta kvölverðarborðið á  midsommar. almamidsommar2
 Nokkrir könglar fengu að fylgja með heim en þeir breyttust í heila fjölskyldu á meðan ég tók myndirnar. „Komdu hingað litla barn, ég passa þig fyrir skrímslinu"

Myndband af Ölmu



Ég setti saman lítið videó af Ölmu, fann þá í leiðinni myndband frá því 2010 og fór bara nánast að gráta þegar ég sá hvað Emil og Alma voru lítil og hvað tíminn hefur liðið hratt. Ætla að vera duglegri að taka myndbrot af þeim því það er alveg dásamlegt að kíkja svona aftur í tímann.

Hér er gamla vídeóið :)


Mars helgi...

marshelgi
Sól og kuldi en bráðum kemur vor. Hér í Svíþjóð eru þeir meira að segja búnir að lofa því að vorið komi snemma í ár, ég treysti á að það rætist!

Enn og aftur...

veikalma

Ég held að við séum búin fá allar flensur fyrir næstu árin bara í vetur. Þessa helgina erum við Alma búnar að vera gjörsamlega ónýtar og erum ekki enn orðnar góðar en við erum búnar að fá tíma hjá lækni á morgun og ég rétt vona að hann geti hjálpað okkur eitthvað.

Þangað til er það bara enn meira kúr og sjónvarpsgláp.

Alma og mamma

almaogmamma

Þar sem ég er yfirleitt á bakvið myndavélina, vantar mig á flestar fjölskyldumyndir. Mér finnst það pínu leiðinilegt og vil að krakkarnir geti séð þegar þau verða stærri að þau áttu líka mömmu. :)
Við Alma settum því upp myndatöku einn dag í vikunni á meðan Emil lagði sig og Alma á sjálf heiðurinn af þessum myndum. Ég stillti tímann og lét myndavélina á gólfið, Alma hljóp svo smellti á takkann og við stilltum okkur upp. Henni fannst þessi leikur alveg ofboðslega skemmtilegur og ég held að ég sé búin að kveikja í smá ljósmyndaáhuga hjá litlu dömunni.

almasj
Krakkarnir eru loksins frískir og allt sjónvarpsgláp búið í bili, ég ætla að halda upp á það og skella mér út í kuldann og sólina.

Hjarta

Photobucket
Ég lærði að gera svona hreyfimyndir um daginn og nú get ég ekki stoppað...skemmtilegt! :)

Dagur tvö í veikindum

Untitled-5
Dundur dagsins í dag var að perla. :)

Instagram myndir

instagramUntitled-10
Allt í einu kom veturinn til okkar.

2 ár!

emiogalma
2 ár frá því við giftum okkur, Fredrik heldur upp á það á Hawaii en ég í kuldanum í Svíþjóð! :)

Alma bakar

IMG_1703
IMG_1688IMG_1694
Alma bakaði banana möffins handa Emil með smá hjálp frá mömmu sinni og þær voru alveg ljómandi góðar.

IMG_1710

Við tókum okkur pásu, fengum okkur smá að smakka og skelltum okkur svo í að pakka afmælisgjöfum. :)
Birthday presents

4 ára

IMG_1563-2IMG_1750IMG_1752IMG_1753

Litla barnið mitt er 4 ára í dag og er alveg ótrúlega stoltur 4 ára strákur, hann fór glaður á leikskólann í morgun með ís handa öllum krökkunum.
Í dag fögnum við líka fæðingu litla frænda sem fæddist í gær á Íslandi.
Jibbí!
:)

Afmælisundirbúningur og kvef.


A day at home
Snúllan mín er enn heima með kvef en við ætlum að nota daginn í að baka eitthvað gott handa stóra bróðir sem verður 4 ára á morgun. Hann er alveg hrikalega spenntur fyrir afmælinu sínu svo það er eins gott að það standist væntingar og að það að verða 4 ára sé alveg miklu betra en að vera 3 ára.

Föstudagur með Ölmu




Alma krútt var heima með mér í dag. Við tókum fullt af myndum, horfðum á teiknimyndir og höfðum það notalegt, nú er hún sofnuð eftir langan dag og kominn tími á "fredagsmys" með strákunum mínum. :)