Ég tók langa pásu frá þessari síðu minni en allt í einu langar mig til þess að setja hana í gang aftur.
Byrja með nokkrum myndum af Ölmu minni. Hún hjálpaði mér við að finna blóm til að skreyta kvölverðarborðið á
midsommar.
Nokkrir könglar fengu að fylgja með heim en þeir breyttust í heila fjölskyldu á meðan ég tók myndirnar. „Komdu hingað litla barn, ég passa þig fyrir skrímslinu"