banner

Showing posts with label sumar. Show all posts
Showing posts with label sumar. Show all posts

Alma og midsommar

Ég tók langa pásu frá þessari síðu minni en allt í einu langar mig til þess að setja hana í gang aftur.
Almamidsommar Byrja með nokkrum myndum af Ölmu minni. Hún hjálpaði mér við að finna blóm til að skreyta kvölverðarborðið á  midsommar. almamidsommar2
 Nokkrir könglar fengu að fylgja með heim en þeir breyttust í heila fjölskyldu á meðan ég tók myndirnar. „Komdu hingað litla barn, ég passa þig fyrir skrímslinu"

sumar sumar...

Ég er alveg að elska sumarið og vona að það haldi áfram á Íslandi eftir að við komum! Deili nokkrum sumar myndum áður en ég kveð tölvuna mína ;)









Fredrik tók myndir af okkur Ölmu en við áttum eitthvað erfitt með að vera eðlilegar saman á mynd :o)




Jæja ég þarf víst að taka til og pakka fyrir Íslandsferðina í kvöld.Á ég að pakka fyrir 20 gráður og sól eða er góða veðrið farið? Allavega sjáumst eftir stutta stund.

Gröna Lund


Við eyddum deginum í gær í Gröna Lund skemmtigarðinum og skemmtum okkur konunglega!

Þessi lest var í miklu uppáhaldi hjá Emil og ég veit ekki hvað hann fór margar ferðir. Honum fannst ekki alveg jafn gaman að bíða í röð eftir tækjunum og skildi ekkert í því af hverju við fórum ekki bara framfyrir allt fólkið.




Við létum þennan stóra eiga sig í þetta sinn..



Alma hafði það gott í vagninum sínum á meðan. Hún er alveg yndislegust, það heyrist varla í henni allan daginn og hún sefur oftast 8 tíma á nóttu, vaknar, drekkur og sefur svo meir. Algjört draumabarn :)

Vona að þið njótið sólarinnar á Íslandi við ætlum allavega að gera það hér í Svíþjóð.
adios


Strandlíf..

Við höfum eytt miklum tíma á ströndinni í góða veðrinu sem hefur verið hérna. Fórum eitt kvöldið eftir kvöldmat þar sem við vorum að kafna úr hita heima og það var svo ljúft að henda sér út í vatnið. Það var ekki einu sinni kalt að koma upp úr þó klukkan hafi verið að nálgast 8 enda um 35 gráður úti :)













HITI

Það er búið að vera svo heitt og yndislegt veður í langan tíma núna, ég neita að kvarta undan hitanum því ég er ekki búin að gleyma kuldanum í vetur. Um helgina var hitastigið um 30 gráður og við hefðum bara átt að hanga á ströndinni og kæla okkur en í staðin unnum við í garðinum okkar, lékum okkur, fórum á flóamarkað og ýmislegt fleira. Ef það verður jafn gott veður um næstu helgi held ég að við verðum skynsamari og förum að synda.



Emil minn slasaði sig aðeins í morgun, hann hljóp inn í herbergið sitt og datt með munninn beint á rúmkantinn. Hann bólgnaði þvílíkt upp fyrst eftir, en það jafnaði sig fljótt og það varla sér á honum núna. Held að þetta hafi tekið meira á mig heldur en hann.


Markaðurinn sem við fórum á..


Og Alma sefur flest allt af sér en bræðir okkur í klessu hverja mínútu sem hún er vakandi. Mér finnst hún vera síbrosandi stelpan (nema þegar ég gleymi mér og borða eitthvað skrýtið) :/


Ciao

Fröken Alma

Alma er orðin 6 vikna og gerir ekki annað en að sofa, drekka og brosa til okkar, held að það sé ekki hægt að hugsa sér betra barn. Hún sefur 6-8 tíma á nóttu sem er auðvitað algjör lúxus og ég vona að hún haldi því bara áfram. :)









Stóri bróðir nýtur sænska sumarsins í botn, hann er alltaf á fleygiferð og næst því ekki oft á mynd en ég náði myndum af honum fyrir og eftir sandkassa leik með Hugo frænda sínum.
hér er hann fyrir sandkassann...

og eftir...

lítur út eins og ég veit ekki hvað, baðkarið breyttist svo í sandkassa þegar við komum heim.

Ein í lokin af Hugo frænda sem stillir sér alltaf upp þegar ég munda vélina :)



Nú er litla daman sofnuð í fanginu á mér og Fredrik sofnaður yfir sjónvarpinu svo ég held að það sé tími til koma sér í háttinn.


Nokkrar myndir ;)

Það hefur verið mikill gestagangur hjá okkur og því ekki mikill tími til að blogga en ég bæti úr því með fullt af myndum af frábæru fólki!























Í dag er haldið upp á midsommar í Svíþjóð og við erum á leið út á engi til að dansa í kringum stöng og syngja jólalög með sumar textum. :)

Góða helgi!