banner

Showing posts with label Emil. Show all posts
Showing posts with label Emil. Show all posts

Vika 2



day 7
...

day 8

...

day 9
...

day 10
...

day 11
...

day 12
...

day 13

Góða helgi

vika 1

Ég hef ákveðið að taka mynd á dag í eitt ár og ætla að pósta þeim vikulega. Vona að ég nái að halda þetta út og til að auðvelda verkefnið ætla ég ekki að hafa nein takmörk heldur taka mynd af hverju sem er, hversu hversdagslegt sem það verður.

Emil byrjaði árið í baði, hann leit á mig í nokkrar sekúndur og sagði síííís sem er mjög óvenjulegt því venjulega forðast hann stíft að horfa í myndavélina.

day 1

Alma fékk prinsessukjól í jólagjöf frá Amöndu frænku sinni :)

day 2


day 3


day 4

Ég var svo stolt þegar Fredrik benti mér á að orkidean okkar væri búin að blómstra aftur. Ég gleymi alltaf að vökva blóm og þau deyja því yfirleitt fljótt hjá mér svo þetta var mikið afrek.

day 5

En gleðin entist ekki lengi því daginn eftir tók Emil eftir þessu líka fína blómi og braut það af til að sýna okkur! En jæja kannski gengur betur með næsta blóm :)

day 6

♥ Guðný Brá

Ísland

Myndir frá æðislegri heimsókn til Íslands, get varla beðið eftir næstu hvenær sem hún nú verður. :/


Alma sátt við að vera komin til ömmu og afa


og Emil fannst ekki leiðinlegt í pottinum

við fórum í bryggjuferðir


og lékum við sæta frænda okkar

heimsóttum dýragarðinn í slakka








fórum í nestisferð með ömmu og afa






og margt margt fleira



Þessar sætu stelpur gæsuðu mig síðan eftirá og gáfu mér yndislegan dag. Held að það sé ekki hægt að eiga jafn frábærar vinkonur!
(stal myndinni frá þér Sunna, vona að það sé í lagi ;) )

Læt þetta duga í bili, þarf svo að sýna ykkur krúttaðar myndir sem ég var að taka af Ölmu.



sumar sumar...

Ég er alveg að elska sumarið og vona að það haldi áfram á Íslandi eftir að við komum! Deili nokkrum sumar myndum áður en ég kveð tölvuna mína ;)









Fredrik tók myndir af okkur Ölmu en við áttum eitthvað erfitt með að vera eðlilegar saman á mynd :o)




Jæja ég þarf víst að taka til og pakka fyrir Íslandsferðina í kvöld.Á ég að pakka fyrir 20 gráður og sól eða er góða veðrið farið? Allavega sjáumst eftir stutta stund.

Gröna Lund


Við eyddum deginum í gær í Gröna Lund skemmtigarðinum og skemmtum okkur konunglega!

Þessi lest var í miklu uppáhaldi hjá Emil og ég veit ekki hvað hann fór margar ferðir. Honum fannst ekki alveg jafn gaman að bíða í röð eftir tækjunum og skildi ekkert í því af hverju við fórum ekki bara framfyrir allt fólkið.




Við létum þennan stóra eiga sig í þetta sinn..



Alma hafði það gott í vagninum sínum á meðan. Hún er alveg yndislegust, það heyrist varla í henni allan daginn og hún sefur oftast 8 tíma á nóttu, vaknar, drekkur og sefur svo meir. Algjört draumabarn :)

Vona að þið njótið sólarinnar á Íslandi við ætlum allavega að gera það hér í Svíþjóð.
adios