Emil fékk sitt fyrsta hjól um daginn, hann er ekki alveg búin að ná tökum á því hvernig maður hjólar en honum finnst samt gaman að sitja á því og sparka sér áfram. Hann er svo ánægður með hjólið að það fær kossa og kveðjur ef við förum út án þess að taka það með.
Ég var að reyna að fá hann til að brosa til mín og spurði hvort hann vildi brosa fyrir ömmu og afa á Íslandi, þá tók hann upp höndina og þóttist vera að hringja í þau. Þegar maður er tveggja ára getur maður nefnilega notað hvað sem er sem síma. ;)
-------
1 comment:
Æjj snúðurinn!!! Hann er BARA sætastur sko....kyssa hjólið hhehe Og hringja í ömmu og afa.... *bráðn*
Langar svo að knúsa hann þegar ég sé þessar yndislegu myndir ;)
Post a Comment