Gamlir og nýjir kjólar
Ég fann þennan svuntu-smekk og kjól á markaði um daginn og kippti þeim með heim, svona sætur smekkur er eiginlega nauðsynlegur þegar maður eyðir jafn miklum tíma við matarborðið eins og Alma gerir ;)
Mér datt svo í hug að taka upp sniðið og sauma fleiri kjóla, það heppnaðist ágætlega og ég gerði nokkrar mismunandi útgáfur. Nú er ég komin í svo mikið saumastuð að mig langar til að sauma 100 í viðbót.
Slaufu Alma :)
Greyið stelpan á brjálaða mömmu sem skreytir hana með slaufum og tekur fullt af myndum.
Hvernig er samt annað hægt þegar maður er svona sætur!
Við erum svo oft spurð að því hvort að hún sé stelpa eða strákur, fólk heldur yfirleitt að hún sé strákur og afsakar sig með því að hún sé svo stór og kröftuleg ;) Þessari skvísu finnst nefnilega ekki leiðinlegt að borða og borðar allt sem við gefum henni. Það eina sem hún hefur ekki viljað borða er eintómt avocado en ef því er blandað saman við banana rennur það ljúflega niður. Hún ætlar sér að verða stór og sterk svo hún geti haldið í við bróðir sinn.
litla rúsínan mín
Emil vill helst ekki sjá það að ég taki myndir af honum en Alma kvartar ekki ennþá svo ég tek margar myndir af henni í staðinn. Því bíður mín haugur af myndum til að vinna og deila en það er erfiðara að finna tímann í það. Ég er svo þreytt og orkulaus á kvöldin þegar börnin eru sofnuð að ég kem ekki neinu í verk og dett útaf fyrir framan sjónvarpið. Ég vona að orkan aukist með vorinu og hækkandi sól :)
Ekki sú hressasta eftir svefnlitla nótt...
alltaf að æfa sig í að standa upp út um allt
og ein fyrir Sigdísi...
:)
Subscribe to:
Posts (Atom)

















































