Okkur hefur lengi langað til að búa til borð í stofuna, en ekki látið verða af því fyrr en nú. Um helgina skelltum við okkur Ikea og keyptum svarta búkka til að nota sem fætur. Í gær tók ég mig svo til og hjólaði í byggingavöruverslun og keypti viðinn í borðplötuna. Ég var frekar skrautleg þegar ég hjólaði heim með langar spýtur á hjólinu og í fanginu og fékk nokkur bros frá gangangi vegfarendum á leiðinni. Nú er eldhúsborðið okkar aftur komið inn í eldhús og nýja borðið (sem ég er kannski aðeins stoltari af en ég ætti að vera) prýðir stofuna.
Showing posts with label heimili. Show all posts
Showing posts with label heimili. Show all posts
Heima


Ég er léleg við að prenta út myndir af krökkunum, fæ yfirleitt valkvíða og veit ekki hvaða myndir ég á að velja. Þessar urðu fyrir valinu í bili og pössuðu svo vel við gömlu rammana sem við áttum hér heima. Litlu myndirnar, sem ég festi á bókahillu, eru tvö póstkort frá Barcelona og myndir frá Santa Barbara. Dreymi mig burt frá gráa nóvember í hvert sinn sem ég geng framhjá þeim.
pom poms
Mér finnst pom poms vera svo falleg skreyting, sérstaklega í brúðkaupum en líka bara heima af engu tilefni. Skemmir ekki fyrir hversu auðvelt það er búa til þessi skemmtilegu pappírs blóm. Verst bara að kisan okkar er alveg jafn hrifin af þeim svo það gengur ekkert annað en að hengja þau hátt hátt upp.
Subscribe to:
Posts (Atom)














