banner

Showing posts with label meðganga. Show all posts
Showing posts with label meðganga. Show all posts

Sól og sumar

Jæja, ekkert barn komið en við Emil erum búin að hafa það gott í sólinni og góða veðrinu alla vikuna.

Hann er alltaf borðandi á öllum myndum sem ég tek því það er eini tíminn sem ég næ honum kyrrum. Sérstaklega auðvelt fyrir hann að komast undan mér þegar við erum úti þar sem það er ekki svo auðvelt fyrir mig að hlaupa á eftir honum lengur! :p


















Hér er 4 daga helgi svo Fredrik er í fríi og við ætlum að skella okkur í sirkus sem er í bænum í dag, ég vona að ég nái fullt af myndum.

Góða helgi!


40 vikur


Jæja 40 vikur í dag og ég vona að þetta sé síðasta myndin sem ég tek af bumbunni, en hver veit kannski tek ég mynd komin 41 viku. :p
Mér líður annars mjög vel og get því ekki kvartað þó ég þurfi að bíða aðeins lengur, á líka svo sætan strák sem vill vera knúsaður alveg í klessu þessa dagana. Held að hann hefi vit á að nýta tímann vel áður en hann verður stóri bróðir, það verður spennandi svo að sjá hvernig hann tekur nýja systkininu.



Ég hef verið að dunda mér á kvöldin við að hekla skó á krílið og prófaði líka að sauma smekk, þarf bara að kaupa franskan rennilás til að festa á hann.





Vona að þið eigið góðan mánudag
knús